Gjörningakeppni í kvöld!

Í kvöld verður Gjörningakeppni í Ungdóm. Þáttakendur geta tekið þátt einir eða í hópi. Enginn þarf að vera með frekar en hann vill. Keppt er í því að sýna besta gjörninginn og verða verðlaun í boði fyrir sigurvegara/nn/na. Óli Jón og Siggi Jón verða dómarar. Gjörningur getur verið allskonar. En góður gjörningur er skrítinn og fyndinn á sama tíma. Dæmi: Dansa og valhoppa grátandi. – Gjörningur getur verið einfaldari eða miklu flóknari. Markmið: Að stíga út fyrir þægindahringinn og fíflast saman. Það er gott fyrir sálina!

Ef veður og tími leyfir munum við líka fara út í aðra leiki!

– Óli Jón og Siggi Jón


Færðu inn athugasemd